Landshlutar |
|---|
| Austurland |
| Norð-Austurland |
| Norðurland |
| Reykjanes |
| Snæfellsnes |
| Suðurland |
| Vestfirðir |
| Vesturland |
Kirkjukort.net er heimasíða sem gefur notendum kost á að sjá hvar allar kirkjur á íslandi eru staðsettar og einnig að sjá ljósmyndir af þeim.
Hægt er að smella á punkta á kortinu til að skoða viðkomandi kirkju.
Ljósmyndirnar eru settar inn af notendum síðunnar og getur hver sem er skráð sig og byrjað að setja sínar myndir inn. Til að byrja að setja inn þínar ljósmyndir á kirkjukort.net sæktu þá um aðgang hér.
Við sendum út fréttabréf af og til, smelltu hér til að skrá þig á póstlistann.
Hugmyndin að síðunni kviknaði út frá ferðalögum okkar um Ísland þar sem víðsvegar má sjá kirkjur og bænahús. Oft veltir maður því fyrir sér hvenær einhver kirkja sé byggð, eða hver sé saga hennar. Okkur langaði þess vegna að gera heimasíðu sem innihéldi upplýsingar um allar kirkjur á landinu og væri einnig auðveld í notkun.
Ef þú hefur einhverjar ábendingar eða athugasemdir sem geta gert síðuna betri þá endilega sendu okkur póst á info@kirkjukort.net.
Við vonum að þú hafir gagn og gaman af þessari vefsíðu.
Þórarinn Örn Andrésson & Andrés Ásgeir Andrésson.
Ljósmyndarar
Við höfum reynt að hafa eina mynd við hverja kirkju, sumar þeirra höfum við tekið sjálfir en flestar höfum við fengið hjá eftirfarandi ljósmyndurum:
Við þökkum þeim kærlega fyrir að leyfa okkur að nota myndirnar þeirra, án þeirra væri kirkjukort.net alls ekki eins spennandi síða.
Heimildir
Við kirkjulýsingar höfum við notast við eftirfarandi heimildir:
Íslandshandbókin - náttúra, saga og sérkenni
Bókaútgáfan Örn og Örlygur hf. 1989, Ritstjórar: Tómas Einarsson og Helgi Magnússon
Landið þitt Ísland
Bókaútgáfan Örn og Örlygur hf. 1985, Höfundar: Þorsteinn Jósepsson og Steindór Steindórsson